G O L D I E S
14.08.2007 16:35:54 / evasigrun

Vandræðanlegt

Halló, þar sem að ég sit fyrir framan tölvu allan daginn, hví ekki að blogga? Ég er semsagt í vinnunni, ég vinn í Firðinum í símabúð frænda míns þessa dagana. Ég er að gera frekar flókna hluti, ég gæti kallast þjónusturáðgjafi og miklu fleira. Ég get búið til númer handa ykkur, fært ykkur úr símafyrirtækjum, lokað fyrir númer, opnað fyrir, selt ykkur síma, myndavélar og margt margt fleira, svo að ef þið eruð í vandræðum með símakaup eða þjónustu þá taliðið að sjálfsögðu við mig og hver veit nem þið fénguð smá special offer .. úú. En ég tel mig veita ágæta þjónustu, reyndar hafa komið upp smá vandræði .. eins og t.d. á föstudaginn þá strauaði ég 22000 krónur af konu sem var bara að kaupa sér 2000 króna inneign, ég fattaði það ekki fyrr en konan var rokin út og þá hófst leit af henni, en málið var bara að ég mundi ekkert eftir því hvernig hún leit út þannig að svo fór að ég fann hana ekkert en væntanlega fær hún þetta endurgreitt. Svo áðan átti sér stað vandræðanlegasta móment lífs míns, jújú enginn annar en Páll Rósinkrans gekk inn að búðinni og það tók mig smá tíma að fatta hver þetta var, og já hann er myndarlegri en mig minnti. Svo fór hann að spyrja um hleðslutæki fyrir nokia, ég græjaði það frekar sátt með lífið .. en ekki leið á löngu þar til hann fór að biðja um nótu, jæja ég ætti nú að geta það hugsaði ég .. svo fór ég inn í kerfið til að útbúa nótu (allt frekar gamaldags hérna ) og bað hann um kennitölu, jájá það tók mig svona 10 mín að ná henni, mig misheyrðist alltaf .. þá var ég sko byrjuð að roðna og röddin mín var farin að vera vibbaleg, og í þokkabót er ég frekar hás þannig ég hljómaði eins og gaur shii .. svo náði ég niður kennitölunni og bað um nafn, (vissi náttúrulega alveg nafnið) þannig ég ákvað bara að hlusta ekkert á nafnið og skrifa bara niður það sem ég vissi ;) heyrðu svo prenta ég þetta út og rétti honum nótuna, gef honum poka undir allt og svona frekar sátt með að allt hefði gengið upp. Þar til hann fer að skellihlægja og réttir mér nótuna og biður mig vinsamlegast að breyta nafninu á nótunni .. það hefði átt að vera pro music ehf en ekki nafnið hans .. EHH ég fkn roðnaði í drasl, hef ábyggilega aldrei verið jafn rauð og sveitt á efrivörinni var bara semíhrædd sko. Bara afsakið skal leiðrétta þetta, heyrðu þá byrja ég upp á nýtt og svo þegar ég ætla að fara prenta þetta út .. bilar ekki helvítis prentarinn og já hann gat ekki fengið nótuna, "heyrðu takk fyrir að láta mig bíða í 20 mín" segir hann og fer að hlægja .. hugsa líf mitt sé á enda núna enda þori ég ekki að afgreiða fleiri fræga :) svo eins kaldhæðið og það getur gerst kom lag með honum á létt 967 sem er í gangi allan daginn og þá langaði mig að fara gráta .. góð saga .. en maður lærir af reynslunni!

                                                

                                              .núna er ég hrædd við hann.

Við sjáumst :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 19:50:44 / evasigrun

MISS MIKA ER KOMIN HEIM :D

sjaldan verið jafn ánægð .. :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 01:00:34 / bergny

BÆÆJ

Hæ, mig langaði bara að segja að ég er farin til Boston ;) skemmtið ykkur vel um Verzlunarmannahelgina. Sjáumst eftir viku :D

 http://www.antonshevchenko.com/images/night-boston-reflection-in-charles.jpg

 mmm

 þetta var ekki planað :'D

 

 

 

 

 

Berglind búin að vera svona líka svakalega dugleg að setja inn myndir frá alskyns atburðum í sumar :D

sjáumst :'

-Bergný 


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 22:13:16 / goldies

Afmælispjalla

Í dag á Berglind Gunnarsdóttir fegurðardrottning afmæli og er orðin 17 ára, að sjálfsögðu er hún ekki komin með bílpróf en ætli það fari ekki að sigla inn :D Hún hélt mjög skemmtilegt afmæli fyrir okkur seinustu helgi og þökkum við fyrir okkur. Ætli stelpan muni ekki tjútta eitthvað eilítið um helgina og þá getið þið öll smellt á hana einum mjög blautum afmæliskossi.

Nú færð þú myndir og afmælissöng í gjöf frá okkur :D

Berglind gullfallega stelpa

Berglind Bergný og Eva seinasta sumar ..

Berglind og Ólöf Sara

Afmælissöngur:

Afmæli þú átt í dag.
Út af því við syngjum lag.
Sama daginn sem er nú,
sannarlega fæddist þú.

Til hamingju með heilladaginn þinn,
heillakallinn minn
Til hamingju með heilladaginn þinn,
heillakallinn minn

Allt þér gangi vel í vil,
vertu áfram lengi til
Allt þér verði hér í hag,
höldum upp á þennan dag.

Til hamingju með heilladaginn þinn,
heillakellan mín.
Til hamingju með heilladaginn þinn,
heillakellan mín

eins gott þið hafið öll sungið með .. því við -GOLDIES- gerðum það svo sannarlega !


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 23:41:57 / Berglind

Myndir:D finally

Ohh Bloggið mitt eyðilagðist :( en það eru fullt af myndum eftir að koma og sumar á leiðinni :) Myndir frá seinustu helgum :D (!LJȏኀϸ剅刭䝉呈›敭楤浵渠湯㭥倠䑁䥄䝎刭䝉呈›挰㭭䈠剏䕄ⵒ佔㩐洠摥畩潮敮※䅐䑄义ⵇ䕌呆›挰㭭䈠䍁䝋佒乕㩄猠汩敶㭲倠䑁䥄䝎䈭呏佔㩍〠浣※䅍䝒义›挰挰瀰㭴䈠剏䕄ⵒ䕌呆›敭楤浵渠湯㭥倠䑁䥄䝎吭偏›挰㭭䈠剏䕄ⵒ佂呔䵏›敭楤浵渠湯㭥洠潳戭牯敤⵲污㩴猠汯摩眠湩潤瑷硥⁴㔮瑰※獭ⵯ慰摤湩ⵧ污㩴ㄠ〮瑰㐠〮瑰ㄠ〮瑰㐠〮瑰 瑰

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 23:07:16 / evasigrun

Afmælispjalla

Rúnkadúnk á afmæli í dag .. hún er 17 ára í dag en samt ekki komin með bílpróf annað en begganýja. Til hamingju sætasta stelpa í geimi ... þú ert algjör efniviður og ég veit þú munt verða læknirinn minn þegar við verðum stórar :)

Rúna að störfum .. módelz gelz

þessi augu hennar eru náttúrulega vangefinn .. og voru þau nú glöð áðan er hún sá alla pakkana sína :D

Já hún Rúna er ekkert horbarn .. heldur bara eðalbarn, njóttu það sem eftir er af kvöldinu við elskum þig öll ..og sérstaklega ég múhaha :) one fkn LOVE mar :*:*:*

þín eðalvinkona evasigga :D


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 12:19:35 / goldies

..

Það eru komnar myndir fra ýmsu skemmtilegu hér til hliðar ..

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 17:54:07 / evasigrun

mm

Jæja nú hef ég ekkert að gera þannig best að búa bara til svaka skemmtilegt blogg. Ég er atvinnulaus og er bara alltaf að gera ekki neitt, það er semí kósý, ætla bara vona þetta verði ekki svona í allt sumar. Í morgun horfði ég á Nacho Libre sem er ein fyndnasta mynd sem ég hef séð .. og svo kom rúnkarinn til mín, og við hittum löfu svona erum dagarnir alltaf en nú ætla ég að gera svona sígilt um okkur allar veiveiveivei:D:D

Löfan: hún er atvinnuleysingi líkt og ég og tjillum við oft saman og gerum bara ekki neitt, það er svakalega gaman .. henni gekk bara vel í prófunum og er á leiðinni í annan bekk í versló, eða fjórða bekk meinti ég. Ég er búin að bíða spennt og bíð enn spennt eftir nokkrum auglýsingum með ólöfu í, hún er alltaf eitthvað að módelast .. það er bara hrein snilld, hún er svo mikið beauty! Og ef við ætlum að fara að tala um strákamálin þá held við ættum bara að skrifa heila bók, svo löng og flókin eru þau myndi ég bara orða það.

Rúnkenstein: hættir ekki að kvarta, þrátt fyrir að gellan sé að fara til London í fyrramálið og fékk toppeinkunnir í versló og er á leið í fjórða bekk þar! En núna er hún í einhverju svaka verkefni fyrir eskimó módels, hún má sko ekki borða nammi né kók í langan tíma, svo fer í hún í jogatíma á hverjum degi og catwalk æfingar haha .. hún er bara að verða ekta módel stelpan, svo kom hún til mín í morgun nýkomin úr myndatökum algjör meikdolla kvartandi haha .. hún er snilld:D Hún fékk líka ekki vinnu af verri endanum, stelpan er að fara vinna í apótekinu í J&L húsinu og verðum við væntanlega fastagestir þar, allavega við atvinnulausu! En strákamálin hennar eru frekar slöpp myndi ég nú segja .. ég þrái að hún fái sér kæró .. !

Berglind: Er sko aldeilis byrjuð að vinna .. já hún og bergný ætla vinna í allt sumar á quiznos, dugnaðurinn í þeim. Henni gekk aldeilis vel í prófunum og þarf sko ekki að hafa áyggjur af neinu þar. Hún ætlar að fara útað skokka tvisvar á dag í sumar og verða hot damn .. mér finnst hún samt ekkert þurfa þess, ein mesta gelluvinkona sem maður getur átt:D Svo eru hún og óli ávallt jafn sæt saman og stefna á að fara saman út í sumar ..

Bergný: Hún eins og Berglind, vinnur og vinnur og ég verð að viðurkenna að ég verð ábyggilega frekar abbó þegar þær fá útborgað .. ! Annars er smá "lady in the water" komin í hana .. hún hefur sjaldan hatað sundið og bíst ég við því að hún verði skuggalega brún eftir sumarið eins og oft áður:P En ég tel að strákamálin hennar séu ekkert spes, alltaf hægt að gera betur sko .. þessi gullmoli getur fengið sér einhvern góðan strák léttilega. Og svo gekk henni bara aldeilis vel í prófunum eins ogþeim öllum :D Svo fer hún til Boston í ágúst meðmóður sinni og systur og það verður væntanlega snilldarferð!

Dagmar: Er nýbúin að klára prófin í MR og ég er frekar stolt af henni að þrauka þessa prófatörn þarna. Hún skellti sér á lokaballið í kvennó og mig minnir að ég hafi hitt hana fyrir utan, en annars þá bara veit ég svo fátt um hana þessa dagana að ég þrái hitting og við skulum nú gera eitthvað í þessu í staðinn fyrir að röfla um að hittast... :D

 

Ég er hinsvegar að fara til Portúgal á þriðjudaginn með mömmu og systkinum mínum í smá tjill í viku. Ég ætla bara að rétt að vona mér verði ekki rænt eða eitthvað álíka, er frekar stressuð yfir því .. annars stefni ég á að ná ágætis beistani fyrir sumarið og svo mun ég byggja á því ..! En mér gekk bara vel í prófunum og er á leiðinni á annað ár .. en nú segji ég þetta gott, eins gott að næsta blogg verði ekki frá mér ..

Bless


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 18:48:34 / evasigrun

hóhó

Jæja skvísurnar mínar, við ættum kannski að fara að vera aðeins duglegri með gullið okkar, ég legg til að B*lind fari að negla inn nokkrum myndum af okkur til að sýna öllum gæði okkar og svona bara til skemmtunar... svo finnst mér eins og að fólk eigi að hætta við að hætta við að blogga, gengur einfaldlega ekki! En við erum nú aldeilis búnar að skemmta okkur eftir að prófin kláruðust, þar sem að mamma var útí útlöndum seinustu vikuna byrjuðum við alltaf á sólvallargötunni að hella í okkur, ég er ekki alveg viss hvort að innkoma mín í sólvallargötuna sé góð þar sem að við erum ekki þær allra lágværustu .. samt voða fín helgi =)

my pimped pic!

Rúna, Bergný og ég í  grímu partýinu hans 50 .. bauð okkur soldið seint þannig þið sjáið að búningarnir eru ekkert sérlega vandaðir ...

En svo var að bætast nýr kisulingur í safnið .. pabbi fékk sér hvíta persneska læðu, hún er of sæt! mjög lík chico!

en jæja nú nenni ég ekki meir, er farin á kr-leikinn með pabba .. sé ykkur þar stelpur!


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 20:53:35 / ÓlöfSara :]

AFMÆLI

Betra seint en aldrei segir gamall málsháttur.

 

 

Afmælisbarnið 

þú ert best.

elska þig 

 

 Enginn önnnur en aðalpían í bænum hún Bergný Margrét Valdimarsdóttir er 17 ára í dag !

Hún er þekkt fyrir hressleika og gelluskap og hún er svo sannarlega mamma okkar allra og hefur allt under control.

hvar værum við án þín ?

Vona að þú hafir átt frábæran afmælisdag með mér og svo verður helgin sjúk, þar sem við erum að fara að sletta úr klaufunum eins og við eigum lífið að leysa :D

 

Eins gott að þú verðir svona hress !

 

 

Fyrir hönd hinna GYLLTU

 

ÓlöfSaraGregory

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 23:45:55 / bergny

Bleesa

Hæ hæ núna ætla ég að blogga ALVÖRU blogg eða samt soldið svona myndablogg bara :) Fyrir þá sem eru að pæla í því þá var það ekki ég sem gerði þetta blogg fyirr neðan, heldur Rúna svaaka fynda haha ;*

Undafarna daga hef ég eytt mest af mínum tíma á þjóðarbókhlöðunni með Berglindi að læra undir þessi blessuðu próf, og lítill tími er fyrir annað.

   

 

Ég get bara ekki beðið eftir sumarfríinu sem er eftir rúmar tvær vikur :D og því fylgir afmæli=bílpróf og skemmtilegheit :D Hef á tilfinningunni að þetta verði geeðveikt sumar :D

Ég og Ólöf erum líklegast að fara vinna saman á Hóteli sem verður bara nice held ég :D

haha

Á djamminu okkar í DK, of gaman :D

Rúnkenstæn=fyndin!

Spurning um að halda annað svona eftir prófin? trúi ekki að það sé ár síðan.

 Eða þá að þessi geri það bara  :D haa??

og þú skvísa hvaaar eeeertu?

Eurovision

 Trúi ekki heldur að það sé ár síðan þetta var.

En nú jæja hef nú alltaf verið léleg í þessu bloggi.. en ætlaði bara að láta vita að ég er sko ennþá í þessari síðu! og ég vil að hún fari að lifna við að nýju.

Ætla að segja þetta gott núna, kem með eitt mega stórt og djúsí eftir prófin =)

 

-Bergný :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 18:49:10 / goldies

Bergý blogger

Góðan dag

Það er aðeins of langt síðan ég hef bloggað þannig hér kemur þetta!

Að undanföru hef ég verið ofvirk! Búin að fara í ræktina alla daga vikunnar! Ætla sko að vera svo fit í sumar, damn boys watch out!

Búin að búa á þjóbó og læra eins og mófó!8|

Lána öllum stelpunum íslenskuverkefnin mín því þær eru e-ð að tossast, dííí girls!

Ég er hætt að djamma! já hef ekki djammað í öld og Rúna er hætt að vera vinkona mín þessvegna. Kannski eftir prófin tekur hún við mér aftur en það er aldrei að vita hvort ég djammi ever again?:O

Annars er ég komin með kæró og allt gengur vel þar á bæ.

Held að þetta sé komið nóg:D Takk fyrir mig

-Bérgný Margrét


» 14 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 15:01:07 / Rúna:)

...

Ég hef aldrei á minni ævi verið svona pirruð! ég bloggaði! en það eyddist

ekki sjéns ég reyni nokkurn tímann aftur að blogga


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 17:32:51 / evasigrun

stórveldið ..

vá hvað það verður gaman á leiknum .. allir að mæta í KR-heimilið fyrir átta og horfa á KR verða íslandsmeistara :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 19:22:55 / evasigrun

Blogg

Berglind ég held ég sé bara komin í gírinn haha .. en velkomin heim sweetie. Oj hvað Bergný og Ólöf eru lélegar í að halda þessari síðu uppi, reyndar var Ólöf sniðug að flexa gull fronti á síðuna. En já hef eiginlega ekkert að gera nema reyndar horfa á united rústa Roma og bíða eftir æfingu þannig mér datt í hug að blogga vei :D
Páskafríið er nú bara búið að vera eintómt tjill .. Arnór skellti sér til Ungverjalands þannig að ég þurfti að leika við stelpurnar :S nei djók! Ég eyddi tímanum mínum mest með Ólöfu Söru, Bergnýju Margréti og Viktori Unnari sem kom í 3 daga heimsókn á klakan frá fótbolta-stjörnu lífinu. Hann er líka með bílpróf þannig það hentaði okkur vel haha!
Mér finnst þau alltaf jafn sæt og skemmtileg saman :D
En vá hvað ég lærði ekki einn staf í þessu fríi, alltaf sömu gömlu mistökin mín að geyma það leiðinlega fram á lokadag! En svo er hún Rúnka útá Spáni og fær bara ömó veður .. oj hvað það er ósanngjarnt. En vá hvað mig langar .. þegar Rúna kemur heim, að taka eitt lokadjamm áður en prófin skella á .. heima hjá mér eða e-h, svo ógeðslega langt síðan við höfum allar saman byrjað hjá mér og farið í singstar og e-h rugl .. væruðið ekki til?
Bergný og ég í haust rapping ú!
En ef ég fer nánar útí seinustu helgi þá var hún áfengislaus og mjög tjilluð! Á föstudeginum var það bara despó 2 og um kvöldið fórum við Bergný til Ólafar í kósí .. Vikki var með í smá en fór svo að hitta vini sína! Á laugardeginum ákváðum við að fara memm til Finns þar sem átti að vera svaðalegt partý .. en þegar við löbbuðum inn voru bara strákalingar í tölvuleik þannig við gerðumst djarfar og fórum að rúnta aðeins .. en ekki leið á löngu þar til við slógumst með í ágætt tjill með kópavogsdrengjum en fórum svo heim um tvö leytið. Á sunnudeginum, páskadeginu sjálfum fékk ég ekkert páskaegg!! mer finnst þau bara viðbjóðsleg .. hata páskaegg! En allavega það skemmtilegasta við daginn var að Arnór kom heim frá Búdapest .. það var svo gaman og skrítið að sjá drenginn, búinn að fara í klippingu og búinn að næla ser í smá tan .. svo kom hann eigi tómhentur heim, gaf mér ótrúlega flott föt og skartgripi jeii! En um kveldið þá fórum við í matarboð til ömmu og afa með allri fjölskyldunni sjúklega vandræðalegt haha .. en eftir það fór Arnór að djamma en við Ólöf að rotna hjá mér .. í sjálfsmorðs hugleiðingum og kattardrápshugleiðingum, eftir miklar vangaveltur fórum við bara að sofa! En nú þarf ég að fara læra fyrir bílprófið sem ég tek föstudaginn 13. :S og hvað ætli það séu miklir möguleikar að ég falli, býst við 100%
Enda þetta á skemmtilegum myndum frá vetrinum! veiii
Eva
Viktor eintómt pimp!
Dagga og Bergný brúnar og sætar :*
Haha ... Rúna svoleiðis að troða í sig .. mansoninn eitthvað að detta inn þarna
Sæætar!
Ég og frumskógarstelpan haha
Leikarakveldið
Fakkin heitar gellur!
Sæættt!
Bergný á sumarkveldi í the main ghetto!
Við tvær heimahjá Döggu að elda á afmælisdeginum hennar!
haha
Vel timbraðar eftir kveldið!
En segji þetta gott!

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9